Sól, sól, sól

Mikið rosalega er búið að vera gott veður í dag, er þetta fyrirboði fyrir einhverju slæmu, ég velti því fyrir mér því yfirleitt eftir gott veður kemur slæmt og svo verra. (ein svartsýn).

Yfirmaður minn sagði við mig kl.9:30 í morgun að þegar ég væri búin með skýrsluna sem ég var að vinna í mætti ég fara heim vegna veðurs.  Ég lét sko ekki segja mér það tvisvar og hamaðist eins og hálfviti að klára skýrsluna sem hafðist svo rétt fyrir hádegi.

Þegar heim kom fór mitt litla heilabú að hringsnúast því ég hafði aukatíma sem ég hafði ekki gert ráð fyrir og varð að nýta hann rétt.

Þar sem ég er nú að flytja eftir 2-3 vikur hefði ég auðveldlega getað verið að pakka saman búslóðinni minni en þegar ég var alveg við það að bræða úr heilabúinu hringdi Björg systir og sagðist vera mála sólpallinn sinn, ég ákvað á svipstundu að gefa s... í búslóðina mína og brunaði til hennar að mála.

Það er auðvitað mjög góð ástæða fyrir því að ég gerði það, ef ég hjálpa henni að mála hafa hún og Siggi enga afsökun fyrir því að hjálpa mér að flytja um mánaðarmótin ha ha ha ha Tounge

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Svartsýna konan mín , ég er viss um að þetta er fyrirboði að geggjuðu sumari hjá þér, fyrr heim úr vinnunni og allt sko.

Þegar ég las fyrirsögnina þá hélt ég að þú hefðir kolfallið svona fyrir litlu Sól minni hahaha, margur heldur mig sig.

Takk fyrir okkur (sérstaklega Emblu Sól) um daginn, það var rosa gott að sjá þig kellan mín og þín yndislegu börn.  Gerum þetta sem fyrst aftur.

Góða skemmtun við að pakka niður, (öfunda þig ekki :)

Elísabet Sigurðardóttir, 11.6.2008 kl. 23:41

2 identicon

Auðvitað kolféll ég fyrir henni, hún er æðisleg, við Birna erum enn að tala um hvað hún er mikið dúlla, það var æðislegt að sjá ykkur og Hjálmar líka.  Áttu nokkuð tóma kassa eftir þína flutninga ?

Ella Kata (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 23:44

3 identicon

Sæl elskan og velkomin á nýjan stað í bloggheiminum ! var ekki nóg að flytja í annað húsnæði heldur líka á netinu ? ehehe

Árni Árnason (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 01:02

4 identicon

Já Addi, þetta var spurning um að byrja uppá nýtt á öllum vígstöðum.

Ella Kata (IP-tala skráð) 12.6.2008 kl. 15:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband