Pólsk ánægja
1.9.2008 | 22:15
Í tvo mánuði hef ég haft góða ástæðu til þess að rífa mig upp kl.6 á morgnana en í morgun var eins og veröld mín brotnaði í marga mola og nú sit ég hér og hugsa með skelfingu um það hvernig ég eigi að fara að því að rífa mig á fætur í fyrramálið.
Í blokkinni sem ég horfi beint á út frá eldhúsglugganum mínum hafa búið tveir athyglissjúkir pólverjar sem hafa fangað mína athygli svo um munar.
Þeir eru í sitthvoru herberginu og draga hvorugir fyrir gluggana sína. Á morgnana hef ég keppst við að fara á fætur til þess að fylgjast með þeim vakna.
Þeir eru berir að ofan, byrja á að ganga út að glugganum , líta út, teygja úr sér (muhaaaaa) og annar þeirra gerir gott betur, hann tekur morgun æfingar (bara fyrir mig) og allar hinar kerlingarnar í blokkinni
Þetta hefur haldið mér vel vakandi á morgnana og kemur mér í gott skap fyrir daginn.
En í dag 1.sept (mánaðarmót) var allt dautt þegar ég leit út, íbúðin virtist vera tóm, hvar eru þeir ? Hvert fóru þeir ? Það er ekki verið að láta mig vita af þessu, ég þurfti að fara í vinnuna án þess að sjá bert hold karlmanns og dagurinn var alveg ónýtur hjá mér.
Ekki get ég ímyndað mér hvað rekur mig á fætur núna. Ég bíð spennt eftir næstu íbúum íbúðarinnar og vona svo sannarlega að þeir verði jafn athyglissjúkir og fyrirverar þeirra.
Kveðja frá piparkerlingunni í blokkinni
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 22:22 | Facebook
Athugasemdir
Æ Æ Æjæjæjæ elskan mín. Þetta er hræðilegt. Ég sendi þér góða strauma svo þú verðir fljótari að jafna þig.
Knús sætasta
Elísabet Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 09:47
Elísabet Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 09:47
Jamen hvurslars eiginnilega er þetta með þessa pólverja að skilja þig svona aleina eftir án útsýnis....ef maður gefur af fúsum og frjálsum vilja getur maður ekki bara rifið það í burtu án þess að gefa eitthvað annað í staðinn!!! Svona gera danir ekki...þeir myndu aldrei uppgefa svona athygli svo pantaðu danska stráka næst!
Er enn á fótum og greinilega ekkert á leiðinni nokkuð spakapaðan hlut á fæðó...Elli litli ætlar bara að vera hérna inni í holunni..... hilsen,
barainga (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 17:28
Þú hlýtur að fá einhverja flotta kroppa þarna hinum megin ég er alveg viss um það
Guðborg Eyjólfsdóttir, 5.9.2008 kl. 10:50
ahahahhahahahahahah ja hérna ! Ella mín ég er sé að þú ert í verri málum en ég ! ég er alla vega ekki orðinn gluggagæjir ennþá ! hahahah Pabbi yrði nú sáttur ef þú næðir þér í einn pólskan ehheheeh
Árni Árnason, 5.9.2008 kl. 19:51
Þú heppin ekkert svona hjá mér sko.
Ásgerður , 9.9.2008 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.