Saga húsið í tvennt

Ég er hrædd um að það þýddi ekki að saga húsin í tvennt við skilnað hér á landi.  Það yrði ansi napurt að búa í hálfu húsinu með allt opið út.  Ég hugsa að innbúið færi út í buskann við rokið sem einkennir okkar góða land.
mbl.is Söguðu húsið í tvennt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir

Það er rétt hjá þér, það yrði ansi kalt að búa í svona opnu húsi en hjá mér myndi kannski fjúka út draslið sem ég sanka að mér á met tíma. Ég þyrfti þá bara að festa niður húsgögnin og kannski binda börnin við þau.

Ragnhildur Jóhanna Barðadóttir, 10.10.2008 kl. 00:21

2 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þetta er örugglega einhverjir strákofar sem að þau hafa sagað í tvennt haha til að eiga nóg af stráum á næsta lóðarskika

Guðborg Eyjólfsdóttir, 10.10.2008 kl. 11:02

3 Smámynd: Árni Árnason

Til hamingju með afmælið stóra systir ! vonandi nýtur þú dagsins til hins ýtrasta

p.s. verður kaka með kaffinu í kvöld ? ehhehehe

Árni Árnason, 14.10.2008 kl. 01:30

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Ella hún á afmæli í dag, jihúuuu,  TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN

Guðborg Eyjólfsdóttir, 14.10.2008 kl. 08:54

5 Smámynd: Elenora Katrín Árnadóttir

Takk fyrir það og takk fyrir gjöfina litli (stóri) bróðir.  Flott lag hjá þér Guðborg, ég fór ósjálfrátt að syngja þegar ég las skilaboðin.  Á þessu bloggi er ekki til umræðu hvað ég er orðin gömul (ung).  Takk  fyrir.

Elenora Katrín Árnadóttir, 14.10.2008 kl. 23:34

6 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Til hamingju með afmælið elsku unga vinkona.  Núna byrjar fyrst fjörið sko.

Elísabet Sigurðardóttir, 15.10.2008 kl. 13:33

7 identicon

Til hamingju með afmælið í fyrra dag Ella mín, núna erum við jafngamlar.   Það var komin tími til að kvitta hérna hjá þér. Kv Kolla bekkjasystir þín

Kolla (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 15:02

8 Smámynd: Guðrún Hafdís Bjarnadóttir

Til hamingju með afmælið um daginn skvís

Guðrún Hafdís Bjarnadóttir, 17.10.2008 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband