Pólsk ánægja

Í tvo mánuði hef ég haft góða ástæðu til þess að rífa mig upp kl.6 á morgnana en í morgun var eins og veröld mín brotnaði í marga mola og nú sit ég hér og hugsa með skelfingu um það hvernig ég eigi að fara að því að rífa mig á fætur í fyrramálið.

Í blokkinni sem ég horfi beint á út frá eldhúsglugganum mínum hafa búið tveir athyglissjúkir pólverjar sem hafa fangað mína athygli svo um munar.

Þeir eru í sitthvoru herberginu og draga hvorugir fyrir gluggana sína.  Á morgnana hef ég keppst við að fara á fætur til þess að fylgjast með þeim vakna.

Þeir eru berir að ofan, byrja á að ganga út að glugganum , líta út, teygja úr sér (muhaaaaa) og annar þeirra gerir gott betur, hann tekur morgun æfingar (bara fyrir mig) og allar hinar kerlingarnar í blokkinni InLove

Þetta hefur haldið mér vel vakandi á morgnana og kemur mér í gott skap fyrir daginn.

En í dag 1.sept (mánaðarmót) var allt dautt þegar ég leit út, íbúðin virtist vera tóm, hvar eru þeir ? Hvert fóru þeir ?  Það er ekki verið að láta mig vita af þessu, ég þurfti að fara í vinnuna án þess að sjá bert hold karlmanns og dagurinn var alveg ónýtur hjá mér.

Ekki get ég ímyndað mér hvað rekur mig á fætur núna.  Ég bíð spennt eftir næstu íbúum íbúðarinnar og vona svo sannarlega að þeir verði jafn athyglissjúkir og fyrirverar þeirra.

Kveðja frá piparkerlingunni í blokkinni Kissing


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Æ Æ Æjæjæjæ elskan mín.  Þetta er hræðilegt.  Ég sendi þér góða strauma svo þú verðir fljótari að jafna þig. 

Knús sætasta

Elísabet Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 09:47

2 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Elísabet Sigurðardóttir, 2.9.2008 kl. 09:47

3 identicon

Jamen hvurslars eiginnilega er þetta með þessa pólverja að skilja þig svona aleina eftir án útsýnis....ef maður gefur af fúsum og frjálsum vilja getur maður ekki bara rifið það í burtu án þess að gefa eitthvað annað í staðinn!!! Svona gera danir ekki...þeir myndu aldrei uppgefa svona athygli svo pantaðu danska stráka næst!

Er enn á fótum og greinilega ekkert á leiðinni nokkuð spakapaðan hlut á fæðó...Elli litli ætlar bara að vera hérna inni í holunni.....  hilsen,

barainga (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 17:28

4 Smámynd: Guðborg Eyjólfsdóttir

Þú hlýtur að fá einhverja flotta kroppa þarna hinum megin ég er alveg viss um það

Guðborg Eyjólfsdóttir, 5.9.2008 kl. 10:50

5 Smámynd: Árni Árnason

ahahahhahahahahahah ja hérna ! Ella mín ég er sé að þú ert í verri málum en ég ! ég er alla vega ekki orðinn gluggagæjir ennþá ! hahahah Pabbi yrði nú sáttur ef þú næðir þér í einn pólskan ehheheeh

Árni Árnason, 5.9.2008 kl. 19:51

6 Smámynd: Ásgerður

Þú heppin  ekkert svona hjá mér sko.

Ásgerður , 9.9.2008 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband