Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

BJÖRN BJARNASON

Hér með skora ég á Björn Bjarnason að segja af sér strax.  Hann er með sinni framkomu búinn að kalla ógæfu yfir okkur Suðurnesjabúa sem seint eða aldrei verður bætt.

Hér með skora ég á flokksbræður hans að taka sig til og stöðva manninn strax áður en hann gerir fleiri heimskulegar vitleysur í skjóli flokksins.

Hér með skora ég á alla ráðamenn landsins að biðja Jóhann og hans menn afsökunar á framkomu ráðherra og bjóða þeim störf sín áfram með gulli og grænum skógum.

Þetta má ekki gerast.

Hvar eru sveitarstjórnarmenn Suðurnesja, afhverju gerið þið ekkert, ég hef ekki séð neina grein frá ykkur, eru sveitarstjórnir á Suðurnesjum sáttar við þessi vinnubrögð ráðherra ?  Er það afþví að hann er réttu megin í pólitík ? Hvað er að ?

Ég veit það allavega með mig að ég kem aldrei á ævinni til með að kjósa þann stjórnmálaflokk sem þessi ráðherra tilheyrir ef enginn gerir neitt í þessu máli.  Þakka ykkur kærlega fyrir kæru stjórnmálamenn sem alltaf eruð til í allt þegar kosningar eru í gangi en farið svo svona með okkur.

ÞETTA ER GEYMT EN EKKI GLEYMT Angry


mbl.is Flótti úr lögreglu Suðurnesja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lögreglustjórinn

Möppudýr sem aldrei hafa gert neitt sem gæti orðið til þess að jakkafötin þeirra krumpist eða nögl brotni.  Möppudýr sem eru í fullri vinnu við að reikna út launin sín, finna út hjá hvaða aumingjum er hægt að skera niður hjá til þess að þeir geti réttlætanlega hækkað sín eigin laun og fríðindi.

Ég held að þessi möppudýr ættu að koma suður til Keflavíkur og eyða nokkrum vikum í vinnu með Jóhanni og hans mönnum.

Á að fara reka manninn fyrir að fara framúr fjárhagsáætlun ?  Það getur ekki verið ástæðan, kannski er hann of kröfuharður á möppudýrin um að þau vinni vinnuna sína.

Á að auglýsa stöðuna hans og reyna fá eitthvað möppudýrs-undirlag í hana sem lætur vel af stjórn og gerir allt sem möppudýrin í ráðuneytinu skipa um, jafnvel þó að þessi ráðuneytis-möppudýr viti ekkert um hvað þau eru að tala/skipa fyrir um.

Ég er bara venjuleg kona.  Þekki ekki möppudýrin í Reykjavík en hef heyrt þau tala í fjölmiðlum og finnst þau oft frekar vitlaus í ákvörðunum sínum gagnvart okkur þjóðinni.  Mér finnst oft vera teknar ákvarðanir um hluti án þess að þau hafi nokkuð vit á þeim og þeirra leið er alltaf besta leiðin, sama hvað okkur litla fólkinu finnst.

Síðan Jóhann tók við þessu embætti hefur verið gífurleg breyting hérna, finnst mér, lögreglan er miklu sýnilegri og mér finnst hann vera harður/ákveðinn í að gera góða hluti, svo ég tali nú ekki um að hann virðist ekkert taka á krimmum með silkihönskum.  Svoleiðis eiga hlutirnir að vera.

Ég vil búa í bæ þar sem mér og börnunum mínum er óhætt.  Ef það kostar að auka verði framlagið til lögregluembættisins þá er þetta í eitt af þeim fáu skiptum sem ég er sátt við að farið sé fram úr fjárlögum.

Hvernig væri nú að taka sig til og safna undirskriftum til þess að mótmæla því að Jóhann R. Benediktsson verði látinn fara ?

 


mbl.is Skipt um lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pirruð piparkelling

Það hefur verið eitthvað lítið um skrif hjá bloggaranum á þessari síðu.

Ástæðan er sú að ég er í fÝlu með stóru Ypsiloni.

Ég ætlaði að gera svo mikið á Ljósanótt, skapa skemmtilegar minningar, opna hvítvínsflöskuna mína og ég veit ekki hvað og hvað meira.

Nákvæmlega á föstudeginum lagðist ég í bólið með flensu Crying

Mína eina upplifun af Ljósanótt var að skreppa á eina listasýningu á föstudagskvöldinu og sjá svo flugeldasýninguna á laugardagskvöldinu.  That´s all.  Þar fyrir utan lá ég heima í hræðilegri sjálfsvorkun, vond út í allt og alla fyrir að hafa smitað mig af þessari bévítans flensu.

Ég dröslaði mér í vinnu alla vikuna á eftir fyrir utan einn dag en steinlá svo alla síðustu helgi líka.

Sem sagt tvær góðar helgar farnar út í veður og vind....................

Til að bæta skapið eða hitt þó heldur er ég nú komin í þunglyndi í þokkabót eftir Reykjavíkurferð sem ég fór í dag.  Þurfti að fara á skiptibókamarkað til þess að kaupa bækur fyrir ensku sem ég er að taka í fjarnámi.

Ég fór með fullt af bókum sem ég hafði keypt síðast þegar ég var í fjarnámi, þær voru bæði glænýjar og í toppstandi en ég fékk ekkert fyrir þær, var með þykka sálfræðibók sem ég hafði keypt nýja á tæpar 5.000 krónur, ég held að ég hafi fengið 1.500 fyrir hana, common.

Ég var alveg bandbrjáluð, var að kaupa bækur fyrir eitt fag, seldi bækur úr tveimur eða þremur fögum en stóð samt uppi með að þurfa borga 9.000 krónur.  Ég fékk heilar 2.900 krónur fyrir bækurnar mínar allar.

Bækur fyrir þetta eina fag kostuðu 12.000 krónur og er það fyrir utan orðabækur og stílabækur, hvað er fólk eiginlega að borga sem er í fleiri fögum, hvernig hefur fólk efni á því að mennta sig í þessari peningakreppu sem vafrar yfir landinu.

 


Frá Önnu móðursystir

Besti ljóskubrandari sem ég hef heyrt! 
 
Tveir starfsmenn spilavítis stóðu við spilaborð þegar ákaflega hugguleg ljóska kom aðsvífandi og kvaðst ætla að veðja 20.000 dollurum á eitt númer í borðinu. "Ég vona að ykkur sé sama" sagði ljóskan, "en ég er alltaf heppnari þegar ég er nakin" og þar með svipti hún sig klæðum, studdi á spilahnapp og skrækti "nú er lag, mig vantar ný föt!"
Síðan hoppaði hún hæð sína og hrópaði
"Yes, yes, ég VANN, ÉG VANN!", þreif fötin sín ásamt öllum peningunum sem voru á borðinu og hvarf á braut.

Gjafararnir störðu undrandi hvor á annan, að endingu gat annar þeirra  stunið upp: "Á hvaða tölu veðjaði hún?"
Hinn svaraði: "Það veit ég ekki, varst þú ekki að fylgjast með því?"

 
LÆRDÓMUR: Ljóskur eru ekki allar heimskar, EN karlmenn eru og verða KARLMENN!

Pólsk ánægja

Í tvo mánuði hef ég haft góða ástæðu til þess að rífa mig upp kl.6 á morgnana en í morgun var eins og veröld mín brotnaði í marga mola og nú sit ég hér og hugsa með skelfingu um það hvernig ég eigi að fara að því að rífa mig á fætur í fyrramálið.

Í blokkinni sem ég horfi beint á út frá eldhúsglugganum mínum hafa búið tveir athyglissjúkir pólverjar sem hafa fangað mína athygli svo um munar.

Þeir eru í sitthvoru herberginu og draga hvorugir fyrir gluggana sína.  Á morgnana hef ég keppst við að fara á fætur til þess að fylgjast með þeim vakna.

Þeir eru berir að ofan, byrja á að ganga út að glugganum , líta út, teygja úr sér (muhaaaaa) og annar þeirra gerir gott betur, hann tekur morgun æfingar (bara fyrir mig) og allar hinar kerlingarnar í blokkinni InLove

Þetta hefur haldið mér vel vakandi á morgnana og kemur mér í gott skap fyrir daginn.

En í dag 1.sept (mánaðarmót) var allt dautt þegar ég leit út, íbúðin virtist vera tóm, hvar eru þeir ? Hvert fóru þeir ?  Það er ekki verið að láta mig vita af þessu, ég þurfti að fara í vinnuna án þess að sjá bert hold karlmanns og dagurinn var alveg ónýtur hjá mér.

Ekki get ég ímyndað mér hvað rekur mig á fætur núna.  Ég bíð spennt eftir næstu íbúum íbúðarinnar og vona svo sannarlega að þeir verði jafn athyglissjúkir og fyrirverar þeirra.

Kveðja frá piparkerlingunni í blokkinni Kissing


Anna móðursystir sendi þetta

Þú veist að það er 2008 ef...



1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.



2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.



3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er af
því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á Facebook .



4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara á takkann á sjónvarpinu.



6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.



7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.



8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.



9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir  númer fimm.



10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer fimm.



11. Svo hlærðu af heimsku þinni.



12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri einhverstaðar EF þú félst fyrir þessu...  Aha ekkert svona fyrst
að þú féllst fyrir þessu.


Sendu þetta á vini þina, á bloggið þitt eða komdu þessu á framfæri
einhverstaðar innan 2 mínútna og 14 sek eða minna og morgundagurinn þinn
verður besti dagur sem þú hefur upplifað .. hingað til!

En, ef þú bíður of lengi,
mun það ekki skipta neina því hverjum er ekki sama svona lista ... En
vinir þínar munu missa af frábærri skemmtun

Klukkuð af Adda bróðir

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

Rækjupillari, Gjaldkeri, Afgreiðsludama, Skólaritari 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

Austin Powers, Police Academy, Naked gun, Löggulíf 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

Keflavík, Garður, Njarðvík,  

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

Man ekki nöfnin, eru um breytingar/lagfæringar á húsum

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

Spánn, Akureyri, Siglufjörður, U.S.A 

Fjórar síður sem ég skoða daglega (fyrir utan bloggsíður):

Mbl.is, Visir.is, vikurfrettir.is, mentor.is 

Fernt matarkyns sem ég held uppá:

Svið, Kjúklingur, Vanilluskyr, Lambakjöt 

Fjórar bækur/blöð sem ég les oft:

Tíðindin, Fréttablaðið, 24 stundir, Vikan

Fjórir staðir sem ég myndi helst vilja vera á núna:

Keflavík/Njarðvík í stærri íbúð, U.S.A. að versla, í Reykjavík hjá tannlækninum mínum, Heima hjá mér

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Guðrún/Þingeyri, Margrét, Bára Inga, Íris frænka


Sjónvarp

Ég var búin að lofa sjálfri mér að blogga ekkert fyrr en ég væri búin með seinni bókina en ég er ekki búin ennþá, það er búið að vera gggggeeðveikt að gera í vinnunni að undirbúa skólabyrjun.

Ég hef verið að grípa í hana á kvöldin en yfirleitt sofnað út frá henni, EN það sem ég er búin að lesa lofar góðu.

Ég ætla ekki að ræða sigurinn hjá strákunum af því að allir bloggarar landsins eru þegar búnir að því en mig langar að ræða annað sem tengist því.

Hafið þið tekið eftir auglýsingum sem eru í fjölmiðlum þessa dagana ?

Það er búið að setja orðin "Landsleiks-tilboð,, fyrir framan verð ýmissa tækja eins og t.d. sjónvarpstækja.  Nú er hægt að kaupa sér sjónvarpstæki á þvílíkum afslætti af því að strákunum gengur svo vel og fyrirtækin sem auglýsa eru svo góð að gefa okkur afslátt í tilefni þess.

Málið er bara það að ég var að kaupa mér sjónvarp fyrir nokkru og skoðaði þá vel verð tækja á ýmsum stöðum.  Tækin sem er verið að bjóða núna eru á nákvæmlega sama verði og þá W00t

ÁFRAM ÍSLAND


Leyndarmálið

Ég lét verða af því að kaupa mér tvær bækur sem mig hefur lengi langað til að eignast, sú fyrsta er "Leyndarmálið,, og hin "Þú átt nóg af peningum,,

Ég las Leyndarmálið þegar ég var fyrir norðan, ég verð að segja eins og er að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hana.  Ég var búin að heyra svo mikið um hana, hún átti að gera kraftaverk á fólki.  Það er alveg ótrúlegt hvað er hægt að selja með góðri auglýsingaherferð.

Það sem fór mest fyrir brjóstið á mér var að skv. bókinni á ég að hafa laðað að mér allt það slæma sem fyrir mig hefur komið um ævina.

Ef fólk deyr ungt t.d. í slysi þá hefur það fólk laðað að sér þær aðstæður, sama er sagt um sjúkdóma.  Ungt fólk í blóma lífsins á að laða að sér krabbamein og/eða dauða t.d. í bílslysi af því það hugsaði ekki nógu góðar hugsanir.

Samkvæmt bókinni hefur fólk vaknað upp frá dauða vegna þess að það hugsar um að gera það.  Kona ein á að hafa læknast af brjóstakrabba með því einu að hugsa um það daglega að hún væri læknuð.

Ég hef nú lesið blogg hjá nokkrum ungum konum sem hafa síðan dáið úr krabbameini og ég hef aldrei kynnst jafn jákvæðum, bjartsýnum, vongóðum og baráttuglöðum manneskjum, það skal enginn segja mér að þær hafi ekki hugsað um að ætla sér að sigra krabbann.

Bókin segir að sjúkdómar geti ekki náð fótfestu í heilbrigðum líkama, ég held að sjúkdómar herji jafnt á allt fólk, hvernig sem líkamlegt/andlegt ástand þeirra er.  Það er sagt að ef þú býrð við skort, ert fórnarlamb aðstæðna eða sjúkdóma, er það vegna þess að þú trúir ekki á orkuna sem býr innra með þér.

Pabbi minn er einn af þeim sem hafði það fínt hér á árum áður, hann átti bát með kvóta sem hann réri sjálfur á og gekk vel.  Allt í einu var kvótinn skorinn niður í 0 og það endaði með því að hann seldi bátinn fyrir einhverja aura og dugði samt ekki til fyrir skuldunum.  Samkvæmt Leyndarmálinu á hann að hafa hugsað um auðæfi á meðan vel gekk en svo leyfði hann ótta að taka völdin og þá tapaði hann kvótanum.  Það voru ekki hinir háu herrar Íslands sem settu hann á hausinn heldur hann sjálfur með neikvæðum hugsunum (skv.bókinni).

Ef mig langar að grennast á ég ekki að fara í megrun heldur hugsa um að ég sé komin í kjörþyngd og þá fara kílóin að fjúka af mér. W00t

Ástæðan fyrir því að ég á ekki peninga er að ég loka fyrir flæði þeirra til mín með neikvæðum hugsunum.  Ef ég er að drukkna í ógreiddum reikningum, á ég ekki að hugsa um leið til þess að borga þá heldur á ég að hugsa um að ég eigi pening fyrir þeim og líka fyrir öllu sem mig langar að kaupa mér.  Ég á að ímynda mér að óopnaðir reikningarnir séu ávísanir. Whistling

Bókin er ekki alslæm, það eru nokkrar setningar í henni sem gripu mig eins og það að ég verði að elska sjálfa mig til þess að geta elskað aðra.  Málið er bara það að ég vissi það nú þegar og hefði getað sparað mér 3.000 kr. með því að segja mér það sjálf.

Ég er byrjuð á hinni bókinni, vonandi verð ég jákvæðari gagnvart henni og þá fer kannski póstkassinn minn að fyllast af ávísunum (ekki gúmmí).Grin


Akureyri

Ég er bara ekki að nenna skrifa ferðasöguna, var án tölvu og internets í tvær vikur og saknaði þess ekkert sérstaklega.

Ferðin var fín, það var Mallorca veður allan tímann og ekki oft hægt að státa sig af því að vera úti að ganga í 18 stiga hita kl.11 að kvöldi til á Íslandi eða hvað ?

Við vorum mikið á ferðinni, keyrðum til Siglufjarðar á Síldarævintýrið meira segja.  Ég var rosalega góð með mig og fór í Vínbúðina á Akureyri fyrir verslunarmannahelgina, keypti mér hvítvínsflösku og ætlaði að taka þátt í gleðinni þar á bæ. Tounge

Þessi hvítvínsflaska liggur inní ísskápnum mínum óopnuð.  Ég fór alla leiðina norður til þess að fara í Vínbúð, geri aðrir betur (dýr flaska).

Við fórum 4 norður, þegar við vorum búin að vera í nokkra daga bættist í hópinn og svo meira um verslunarmannahelgina þannig að við vorum 13 þegar mest var.  Mikið fjör, mikið gaman.

Mamma var auðvitað alveg stjórnlaus eins og vanalega, hún óð inní eina búð í göngugötunni, babblaði á einhverju hrognamáli og reif Evrur uppúr buddunni sinni, þóttist ekkert skilja afgreiðslustúlkuna, sem lét hana fá vöruna TAX FREE án þess að hafa hugmynd um hverrar þjóðar hún væri.  Þegar út úr búðinni kom sendi mamma afgreiðslustúlkunni puttann og öskraði: Skítt með kerfið...................Devil

Trúlegt að móðir mín gæti gert svona lagað.  Ég bjó þessa sögu til þegar ég var að segja frá ferð okkar mömmu í miðbæ Akureyrar.

Á svæðinu var peningaplokkari dauðans, Tívolíið fræga.  Miðinn búinn að hækka um 100% síðan síðast.  Það kostaði allt að kr.800 fyrir 1 barn í tæki.  Á nokkrum mínútum horfði ég á eftir peningum sem ég hafði verið þó nokkra klukkutíma að vinna fyrir.  Ekki var það til þess að bæta það hvað starfsfólkið var yfir sig leitt á vinnu sinni, það stóð með súran svip og beið eftir að við drulluðum okkur heim svo þau gætu lokað búllunni.

Þetta var ævintýri sem geymt verður í minni en nú er alvaran tekin við, komin heim, farin að vinna aftur og bíða eftir Ljósanótt í Reykjanesbæ, alveg ákveðin í því að þá skal hvítvínsflaskan verða afmeyjuð (eða hvað haldið þið ?).

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband